23/01/2025
Fjármögnun Harpa Capital Partners II (HCPII) lauk nú á dögunum en tekið var við áskriftum fyrir rúmlega 30 milljónir breskra punda og er það yfir efri mörkum þess sem stefnt var að.
Sjóðurinn veitir íslenskum fagfjárfestum tækifæri á að fjárfesta í spennandi fyrirtækjum í Bretlandi við hlið Kviku, auk reyndra breskra fjárfesta og rekstraraðila.
Kvika eignastýring veitir alhliða fjármálaþjónustu fyrir efnameiri einstaklinga, sjóði og stofnanir með áherslu á langtímaárangur