Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Lífeyrissjóður verzlunarmanna Lífeyrissjóður verzlunarmanna er stærsti opni lífeyrissjóðurinn á Íslandi.

Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga kl: 9:00-16:00 og föstudaga kl: 9:00-15:00 en ávallt opið á Mínum síðum á live.is.

08/09/2026

Vissir þú þetta? Byrjaðu strax í dag því tíminn vinnur með þér 🕑

Hefur þú heyrt um tilgreinda séreign? Heitið ruglar marga en þessi tegund séreignar var búin til í kjarasamningum fyrir ...
08/09/2026

Hefur þú heyrt um tilgreinda séreign?

Heitið ruglar marga en þessi tegund séreignar var búin til í kjarasamningum fyrir um 10 árum til að bjóða fleirum val um meiri séreign.

Í stuttu máli snýst þetta val um að þú sem sjóðfélagi okkar getur valið að breyta um fjórðungi af því sem er greitt í lífeyrissjóð í hverjum mánuði í séreign í stað þess að afla þér mánaðarlegra réttinda til ævilangra eftirlauna.

Til að hjálpa þér að taka ákvörðun um hvað hentar þér gerðum við stutt próf með einföldum spurningum 👇 Hvernig finnst þér?

Þú getur valið meiri séreign hjá okkur.Með henni gætir þú hætt fyrr að vinna og/eða tekið inneign út hraðar. Þú velur áv...
12/08/2026

Þú getur valið meiri séreign hjá okkur.
Með henni gætir þú hætt fyrr að vinna og/eða tekið inneign út hraðar. Þú velur ávöxtunarleið og inneignin erfist.

Í boði fyrir alla sjóðfélaga. Meiri séreign hentar oft best þeim sem eru á seinni hluta starfsævinnar eða hafa byggt upp góð réttindi til ævilangs lífeyris.

Kynntu þér málið á live.is eða hjá ráðgjöfum okkar.

22/07/2026

Svörin sem þú vissir ekki að þú þyrftir, það sem starfsfólkið okkar vissi ekki áður en það byrjaði að vinna hjá sjóðnum og af hverju þú færð aldrei bústað hjá LIVE!

Veist þú hvað framreikningur réttinda er? Þetta er eitt af því sem fæstir vita um að sé innifalið í lífeyrisréttindunum ...
20/07/2026

Veist þú hvað framreikningur réttinda er? Þetta er eitt af því sem fæstir vita um að sé innifalið í lífeyrisréttindunum þínum. Sumir hafa kallað þetta "gullið" í samtryggingunni? Hvað finnst þér?

📣Séreign inn á lán - áfram í boðiNý lög taka gildi í október um að nýta séreign inn á höfuðstól láns. Þeir sem hafa ekki...
20/07/2026

📣Séreign inn á lán - áfram í boði
Ný lög taka gildi í október um að nýta séreign inn á höfuðstól láns. Þeir sem hafa ekki fullnýtt sína heimild geta því sótt um aftur hjá Skattinum fyrir 1.desember 2026, ef umsókn á að gilda fyrir iðgjöld ársins.

Hægt verður að sækja um í október, samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum.

📩 Vertu með netfangið þitt skráð á Mínum síðum á live.is og við munum láta þig vita þegar allt liggur fyrir um framkvæmdina.

Viltu leiða verkefni sem móta starfsemi þar sem gæði, traust og fagmennska skipta sköpum?Við leitum að öflugum, lausnami...
14/07/2026

Viltu leiða verkefni sem móta starfsemi þar sem gæði, traust og fagmennska skipta sköpum?

Við leitum að öflugum, lausnamiðuðum og drífandi verkefnastjóra til starfa á rekstrarsviði, innan verkefnastofu og gæðastjórnunar. Kynntu þér starfið nánar á vefnum okkar 👇

Sæktu um starf hjá sjóðnum og gerðu grein fyrir því hvers vegna þú ert rétta manneskjan í hópinn.

Umfjöllun Morgunblaðsins undanfarna daga um ávöxtun séreignarsparnaðar vekur mikilvæga spurningu: Hvernig eigum við að h...
09/07/2026

Umfjöllun Morgunblaðsins undanfarna daga um ávöxtun séreignarsparnaðar vekur mikilvæga spurningu: Hvernig eigum við að hugsa um áhættu í lífeyrissparnaði?

Það er eðlilegt að fólk vilji fara varlega með sparnaðinn sinn. Hann á að standa undir lífskjörum síðar á ævinni og því skiptir máli að hann sé varðveittur af ábyrgð.

En í langtímasparnaði er áhætta ekki aðeins sú að eignir sveiflist í verði frá mánuði til mánaðar eða ári til árs. Áhætta getur líka falist í því að vera of varfærinn of lengi.

Sá sem á eftir 30 ár þar til lífeyrissparnaðurinn verður nýttur er í annarri stöðu en sá sem er að nálgast starfslok. Yngri sjóðfélagi hefur almennt lengri tíma til að þola sveiflur á mörkuðum og njóta langtímaávöxtunar.

Þegar nær dregur útgreiðslu verður eðlilegra að draga úr sveiflum og leggja meiri áherslu á stöðugleika.

Þess vegna skiptir val á ávöxtunarleið miklu máli.

Of varfærin leið getur virst þægileg til skamms tíma, sérstaklega þegar markaðir sveiflast. En ef hún skilar lægri ávöxtun ár eftir ár getur munurinn orðið verulegur yfir heila starfsævi. Lítill munur í árlegri ávöxtun getur safnast upp í stórar fjárhæðir þegar horft er yfir áratugi.

Það þýðir ekki að allir eigi að velja áhættumestu leiðina. Það þýðir að ávöxtunarleið þarf að passa við aldur, stöðu, áhættuþol og tímann þar til sparnaðurinn verður notaður.

Til að aðstoða sjóðfélaga okkar við valið höfum við útbúið létt próf þar sem þú getur skoðað hvaða ávöxtunarleið gæti hentað þínum áherslum best 👉

08/07/2026

Átt þú réttindi hjá okkur?

Address

Kringlan 7
Reykjavík
103

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 15:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lífeyrissjóður verzlunarmanna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category