06/07/2026
Aukakrónuhlaup Ármanns verður haldið miðvikudaginn 8. júlí en hlaupið er Íslandsmótið í 10km götuhlaupi.
Vegleg útdráttarverðlaun frá samstarfsaðilum Aukakróna Landsbankans.
5 km hlaup:
Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá sigurvegarar í karla og kvennaflokki 30 þúsund Aukakrónur hvort.
10 km hlaup:
Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá efstu þrír af hvoru kyni Aukakrónur, 80.000 kr Aukakrónur fyrir 1. sæti, 45.000 kr Aukakrónur fyrir 2. sæti og 20.000 kr Aukakrónur fyrir 3. sæti.
Afhending keppnisnúmera fer fram í höfuðstöðvum Landsbankans, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík, mánudaginn 6. júlí og þriðjudaginn 7. júlí milli kl. 16 og 18. Einnig er hægt að nálgast hlaupanúmerin þar á hlaupdegi frá kl. 16 þangað til hálftími er í ræsingu.
Gengið er inn um aðalinngang Landsbankans en næg bílastæði má finna í bílastæðakjallara undir Landsbankanum.
Skráning: https://netskraning.is/aukakronuhlaup-armanns/