Nasdaq Iceland

Nasdaq Iceland Nasdaq er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem rekur m.a. verðbréfamarkaði með fjármálagerninga víða um heim.

Starfsemi Nasdaq á Íslandi samanstendur af Nasdaq Iceland (Kauphöllin) og Nasdaq verðbréfamiðstöð. Fyrirvari: http://www.nasdaqomx.com/online_postings_disclaimer

Frábær mæting var á viðburðinn "Svona byrjar þú að fjárfesta" í gærkvöldi, sem við héldum í samstarfi við Björn Berg, fj...
28/05/2026

Frábær mæting var á viðburðinn "Svona byrjar þú að fjárfesta" í gærkvöldi, sem við héldum í samstarfi við Björn Berg, fjármálaráðgjafa en um 200 manns mættu til leiks í Tónabíó. Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland flutti erindi um hvernig fjárfestingar fara fram í Kauphöllinni, frumútboð og fyrirkomulag viðskipta. Björn fór síðan yfir hvernig einstaklingar geta náð sem bestum árangri á verðbréfamarkaði.

Mikill áhugi undirstrikar mikilvægi fjármálalæsis, sem er lykilþáttur fyrir virkari, upplýstari og viðnámsbetri fjárfesta.

Í dag eru 5 ár síðan Síldarvinnslan var skráð á Aðalmarkað!🥳Skráningardagurinn var bjartur og fallegur, en athöfnin fór ...
27/05/2026

Í dag eru 5 ár síðan Síldarvinnslan var skráð á Aðalmarkað!🥳Skráningardagurinn var bjartur og fallegur, en athöfnin fór fram um borð í togaranum Berki II sem lá við höfn í Nesskaupsstað, þann 27. maí 2021.

Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með vegferð félagsins á markaði frá skráningu og þeim árangri sem hefur náðst. Síldarvinnslan (SVN) hefur styrkt stöðu sína sem eitt af lykilfélögum íslensks atvinnulífs og er mikilvægur þátttakandi á íslenskum hlutabréfamarkaði. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og að styðja við verðmætasköpun þeirra fyrir hluthafa og samfélagið í heild. Til hamingju öll hjá Síldarvinnslunni🩵!

Til hamingju með 10 ár sem skráð félag, Iceland Seafood International!🥳Skráning á markað gegnir lykilhlutverki í að styð...
26/05/2026

Til hamingju með 10 ár sem skráð félag, Iceland Seafood International!🥳

Skráning á markað gegnir lykilhlutverki í að styðja við vöxt, gagnsæi og alþjóðlega uppbyggingu fyrirtækja og Iceland Seafood International er gott dæmi um það. Iceland Seafood (ICESEA) er með sterkar rætur í íslenskum sjávarútvegi og hefur þróast í alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi, vinnslu og sölu á mörkuðum um allan heim.

Við hjá Nasdaq Iceland óskum Iceland Seafood International innilega til hamingju með áfangann og hlökkum til að fylgja félaginu fram veginn💙.

Nasdaq verðbréfamiðstöð (systurfyrirtæki Nasdaq Iceland kauphallarinnar) hefur ráðið Elísu Björgu Grímsdóttur í stöðu sé...
07/05/2026

Nasdaq verðbréfamiðstöð (systurfyrirtæki Nasdaq Iceland kauphallarinnar) hefur ráðið Elísu Björgu Grímsdóttur í stöðu sérfræðings, en hún mun einblína á samskipti og þjónustu við viðskiptavini, ásamt þróun á nýjum vörum og þjónustu.

Elísa er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Elísa kemur til Nasdaq frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) þar sem hún starfaði við miðvinnslu á fjármálasviði, en þar áður starfaði hún við vörslu og uppgjör verðbréfaviðskipta hjá Kviku banka.

Við bjóðum Elísu hjartanlega velkomna til okkar🧡.

Hvernig er hægt að blása til sóknar í atvinnulífinu án þess að ýta undir verðbólgu? Um það skrifaði Baldur Thorlacius, f...
09/04/2026

Hvernig er hægt að blása til sóknar í atvinnulífinu án þess að ýta undir verðbólgu? Um það skrifaði Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga í Viðskiptablaðið á dögunum og kallaði eftir þjóðarátaki í fjárfestingum. Í stuttu máli þurfum við að fjárfesta, en getum því miður ekki stólað á vaxtalækkanir á næstunni. Það er aftur á móti mikið sparifé á hliðarlínunni sem mætti koma "í vinnu" með því að nýta markaðinn betur.

"Ef við erum bjartsýn og trúum á íslenskt hugvit og framtakssemi ætti það að vera hagur okkar allra að almenningur, lífeyrissjóðir og aðrir aðilar fjárfesti í auknum mæli í íslensku atvinnulífi, taki þannig þátt í því að búa til ný verðmæti og njóti loks góðs af því í formi ávöxtunar og arðgreiðslna."

Meira um þetta hér⬇️

„Við búum meira að segja við svo mikinn sparnað að sumir vilja meina að hér sé skortur á góðum fjárfestingartækifærum.“

🚀Leiðin að skráningu á markað – góður áhugi í Nasdaq Iceland IPO Academy.Undanfarna mánuði höfum við hjá Nasdaq Iceland ...
24/03/2026

🚀Leiðin að skráningu á markað – góður áhugi í Nasdaq Iceland IPO Academy.

Undanfarna mánuði höfum við hjá Nasdaq Iceland í samstarfi við sérfræðinga frá Arion banki, BBA//Fjeldco og KPMG á Íslandi unnið með 12 efnilegum félögum í Nasdaq Iceland IPO Akademíunni. Fulltrúar þessa félaga, sem eru í fjölbreyttum greinum, hafa einu sinni í mánuði sest á námsbekk og fengið hagnýta leiðsögn frá sérfræðingum markaðarins. Fjallað var vítt og breitt um leiðina að skráningu félags á hlutabréfamarkað, allt frá fyrstu hugmynd, fjármögnun og fjárfestasögu, í stjórnarhætti, lagaleg málefni og lífið eftir skráningu. Núna í síðustu viku lauk námskeiðinu og voru öll sammála um að fræðslan hafi aukið skilning á bestu aðferðum til skráningar, en ekki síst á þeim valmöguleika sem hlutabréfamarkaður er fyrir félög sem hyggja á vöxt með þátttöku breiðs hóps fjárfesta.

Húsfyllir í Kauphöllinni á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna🌸Húsfyllir var í gærmorgun þegar Alþjóðlegur baráttudagur kvenn...
12/03/2026

Húsfyllir í Kauphöllinni á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna🌸
Húsfyllir var í gærmorgun þegar Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var haldinn hátíðlegur í Kauphöllinni. Þar sem 8. mars bar upp á helgi í ár, var deginum fagnað í gær 11. mars. Áhersla dagsins var á jafnrétti kynjanna og mikilvægi samstilltra aðgerða í atvinnulífi og samfélagi.

Viðburðurinn er nú haldinn í níunda sinn og er samstarfsverkefni Nasdaq Iceland, FKA - Félag kvenna í atvinnulífinu, UN Women Ísland og UN Global Compact Íslandi. Heiðursgestir okkar í ár voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, borgarstjóri og svæðisstjóri UN Women, og Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips. Ingibjörg flutti áhrifaríka hugvekju um stöðu jafnréttismála og Vilhelm kynnti hvernig markvissar breytingar á fyrirtækjamenningu hjá Eimskipi hafa skilað auknu jafnrétti, meiri starfsánægju og ánægðari viðskiptavinum.

Dagskránni lauk með hefðbundinni bjölluhringingu fyrir jafnrétti kynjanna en alls taka 110 kauphallir víða um heim þátt í deginum með sambærilegum viðburðum og bjölluhringingum.

Bera – nýtt heiti Ölgerðarinnar.Móðurfélag Ölgerðarinnar hefur tekið upp nýtt nafn, Bera, í tengslum við skipulagsbreyti...
04/03/2026

Bera – nýtt heiti Ölgerðarinnar.

Móðurfélag Ölgerðarinnar hefur tekið upp nýtt nafn, Bera, í tengslum við skipulagsbreytingar samstæðunnar. Í Kauphöllinni er félagið frá og með deginum í dag því skráð á nýju nafni og með auðkennið (e. Ticker) BERA. Ölgerðin heldur áfram óbreytt sem heiti drykkjarvörustarfseminnar.

Við óskum félaginu innilega til hamingju með nýja nafnið og óskum nýjum forstjóra Beru, Jóni Þorsteini Oddleifssyni til hamingju að auki.

Nasdaq Iceland og Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) héldu ráðstefnuna „Kraftmikill sparnaður í seilingarfjarlæg...
11/02/2026

Nasdaq Iceland og Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) héldu ráðstefnuna „Kraftmikill sparnaður í seilingarfjarlægð?“ í gær. Á ráðstefnunni var fjallað um hvernig hægt er að efla sparnað einstaklinga með aukinni þátttöku einstaklinga á verðbréfamarkaði, með sérstakri áherslu á mögulega innleiðingu sérstakra fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga. Innleiðing slíkra reikninga myndi einfalda almennum fjárfestum lífið svo um munaði. Ef þeir yrðu útfærðir með svipuðum hætti og í Svíþjóð þyrftu fjárfestar t.d. ekki að telja fram arð eða söluhagnað vegna einstakra fjárfestinga heldur myndu þeir borga einfaldan árlegan skatt. Þetta myndi því gera fjárfestingar mun aðgengilegri og vonandi hvetja fleiri til að byrja að fjárfesta.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og upptöku frá henni má nálgast á vefsíðu SFF, sjá hlekk í fyrstu ummælum.

"Viðburður ársins á íslenska hlutabréfamarkaðnum var án alls vafa sala ríkisins á eftirstandandi hlut sínum í Íslandsban...
30/12/2025

"Viðburður ársins á íslenska hlutabréfamarkaðnum var án alls vafa sala ríkisins á eftirstandandi hlut sínum í Íslandsbanka í stærsta almenna útboði Íslandssögunnar. Íslandsbankaútboðið sýnir líka magnaðan og oft vanmetinn mátt almennings." Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland skrifar í Innherja.

Nasdaq Iceland óskar landsmönnum öllum gleði, farsældar og friðar á nýju ári🧡

Heimilin eiga nú yfir 1.800 milljarða á bankareikningum. Slagkraftur þeirra til fjárfestinga er því mikill og varla sást högg á vatni eftir Íslandsbankaútboðið. Tækifærin í ofangreindum aðgerðum til aukinna fjárfestinga, bættrar ávöxtunar og betri lífskjara eru því umtalsve...

Address

Laugavegur 182
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nasdaq Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share