Reykjavik Fintech Cluster

Reykjavik Fintech Cluster Reykjavík Fintech er samfélag um þróun fjártækni.

𝗙𝗶𝗻𝘁𝗲𝗰𝗵 𝗜𝗰𝗲𝗹𝗮𝗻𝗱 𝟮𝟬𝟮𝟲 𝘀𝗸𝘆́𝗿𝘀𝗹𝗮𝗻Við erum að kortleggja íslenska fjártæknigeirann og leitum eftir röddum úr greininni. Endi...
28/01/2026

𝗙𝗶𝗻𝘁𝗲𝗰𝗵 𝗜𝗰𝗲𝗹𝗮𝗻𝗱 𝟮𝟬𝟮𝟲 𝘀𝗸𝘆́𝗿𝘀𝗹𝗮𝗻

Við erum að kortleggja íslenska fjártæknigeirann og leitum eftir röddum úr greininni. Endilega taktu þátt í stuttri könnun með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan:

https://www.reykjavikfintech.is/so/d7PmbCVDk

Þátttaka í könnuninni veitir tækifæri til að hafa áhrif á hvernig fjártæknigeirinn á Íslandi er kynntur, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.

🎆 Nýárskveðja frá Reykjavík Fintech 🎆Reykjavík Fintech óskar samstarfsaðilum og vinum gleðilegs nýs árs og þakkar kærleg...
01/01/2026

🎆 Nýárskveðja frá Reykjavík Fintech 🎆

Reykjavík Fintech óskar samstarfsaðilum og vinum gleðilegs nýs árs og þakkar kærlega fyrir gott og árangursríkt samstarf á árinu sem leið.

Það er mikils virði að byggja upp öflugt og lifandi nýsköpunarsamfélag á sviði fjártækni á Íslandi. Á liðnu ári höfum við, með ykkar þátttöku, styrkt tengsl innan greinarinnar, stuðlað að þekkingarmiðlun og skapað vettvang fyrir samvinnu, nýjar lausnir og metnaðarfull verkefni.

Framundan eru spennandi tímar. Á nýju ári munum við halda áfram að efla samfélagið, skipuleggja fundi sérhæfðra hópa, standa fyrir fjölbreyttum viðburðum og styrkja alþjóðleg tengsl Reykjavík Fintech.

Við viljum skapa skilyrði fyrir samkeppnishæfa, ábyrga og framtíðarmiðaða fjártækni, þar sem frjó nýsköpun er studd af skilvirku regluverki og þar sem áreiðanleiki er í fyrirrúmi.

Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi ári og til að móta með ykkur framtíð fjártækni á Íslandi.

Kæru aðilar og vinir, Reykjavík Fintech óskar ykkur gleðilegs nýs árs og vill þakka kærlega fyrir gott og árangursríkt samstarf á árinu sem leið. Það er mikils virði að byggja upp öflugt og lifandi nýsköpunarsamfélag á sviði fjártækni á Íslandi. Á liðnu ári höfum við...

Nýsköpunarfyrirtækið Atlas, í samstarfi við Reykjavík Fintech, efnir til kynningarviðburðar og freyðivínsteitis á Dixon ...
04/12/2025

Nýsköpunarfyrirtækið Atlas, í samstarfi við Reykjavík Fintech, efnir til kynningarviðburðar og freyðivínsteitis á Dixon Lounge föstudaginn 12. desember kl. 14. Allir velkomnir og skráning hér:
https://www.facebook.com/events/825368753463903/

Atlas mun setja í loftið nýtt skýjaumhverfi, hýst á Íslandi, fyrir fyrirtæki og stofnanir. Slíkt skýjaumhverfi tryggir stafrænt sjálfstæði Íslands með öruggri og aðgengilegri innlendri skýjaþjónustu.

Viðburðargestir fá stofnafslátt á fyrstu s*x mánuðum af notkun á Atlas skýinu.

Nánari upplýsingar hér: runatlas.is

𝐑𝐞𝐲𝐤𝐣𝐚𝐯𝐢́𝐤 𝐅𝐢𝐧𝐭𝐞𝐜𝐡 𝐤𝐲𝐧𝐧𝐢𝐫 𝐛𝐚𝐧𝐤𝐚𝐭æ𝐤𝐧𝐢𝐡𝐨́𝐩Reykjavík Fintech kynnir með stolti bankatæknihóp, nýjan vettvang sem ætlað er a...
25/11/2025

𝐑𝐞𝐲𝐤𝐣𝐚𝐯𝐢́𝐤 𝐅𝐢𝐧𝐭𝐞𝐜𝐡 𝐤𝐲𝐧𝐧𝐢𝐫 𝐛𝐚𝐧𝐤𝐚𝐭æ𝐤𝐧𝐢𝐡𝐨́𝐩

Reykjavík Fintech kynnir með stolti bankatæknihóp, nýjan vettvang sem ætlað er að stuðla að umræðum og miðlun þekkingar á sviði bankatækni (e. BankTech), sem er mikilvægt undirsvið fjártækninnar.

Þátttaka einskorðast við meðlimi Reykjavík Fintech (Fjártækniklasans í Reykjavík) og verður fyrsti fundur hópsins auglýstur á næstunni.

Formenn bankatæknihópsins eru Kristján Theodór Sigurðsson hjá Arion banka og Greta Lind Kristjánsdóttir hjá RB.

Hópurinn leggur áherslu á stafræna þróun, nýsköpun og tæknilega umbreytingu í bankastarfsemi. Hann er vettvangur umræðna og þekkingarmiðlunar um málefni á borð við kjarnakerfi banka, stafræna þjónustu, gagnaöryggi, gervigreind og innleiðingu nýrrar tækni í starfsemi fjármálastofnana.

Sérstök áhersla verður lögð á fjártækniþjónustur bankanna og mikilvægt hlutverk þeirra sem burðarásar í íslensku fjártækniumhverfi. Bankar á Íslandi hafa um langt skeið gegnt lykilhlutverki í fjártækni og skapað grunn að nýjum lausnum með því að bjóða upp á vefþjónustur fyrir ytri aðila í yfir tvo áratugi. Þessi sérstaða hefur gert fjártæknifyrirtækjum kleift að byggja eigin þjónustu ofan á innviði bankanna og stuðlar þannig að virku og tæknivæddu vistkerfi fjármálaþjónustu.

Markmið hópsins er að efla nýsköpun og faglega umræðu á sviði bankatækni og stuðla þannig að öruggum og samkeppnishæfum innviðum íslensks fjármálakerfis. Hópurinn mun í hvívetna starfa í samræmi við samkeppnislög.

Kristján Theodór er tæknilegur vörustjóri fyrir fjártækniþjónustu hjá Arion banka þar sem hann ber ábyrgð á vöruþróun á ytri vefþjónustum bankans. Hlutverk hans er að tryggja að fjártæknifyrirtæki hafi bæði tól og stuðning til að smíða framúrskarandi lausnir ofan á þjónustuframboð bankans. Fintech er sérstakt áhugamál Kristjáns og því hefur hann sérstaklega gaman af því að taka þátt í verkefnum sem skapa virði fyrir samstarfsaðila, viðskiptavini og samfélagið í heild. Hann er með meistaragráðu í vélaverkfræði frá UC Berkeley með áherslu á vöruhönnun. Áður starfaði hann hjá Deloitte sem ráðgjafi í samþættingu kerfa og sjálfvirknivæðingu í iðnaði.

Greta Lind er stjórnandi með sérhæfingu í verkefnastjórnun tækniverkefna og með yfir 27 ára reynslu hjá RB (Reiknistofu bankanna). Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum verkefnum sem tengjast kjarnakerfum, greiðslulausnum og tæknilegum innviðum íslenska fjármálakerfisins. Hún leggur áherslu á skýrt skipulag, faglega verkefnastjórnun og þjónandi leiðtogastíl sem tengir saman trausta innviði og nýjar lausnir sem stuðla að skilvirkara og öruggara bankakerfi. Greta er þátttakandi í Mentorverkefni FKA, þar sem hún hefur leiðbeint og stutt ungar konur í atvinnulífinu síðustu ár. Hún lauk MPM-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022, þar sem lokaverkefni hennar fjallaði um sérfræðiþekkingu verkefnastjóra og beitingu hennar í stjórnun tækniverkefna.

🇮🇸 𝐑𝐞𝐲𝐤𝐣𝐚𝐯𝐢́𝐤 𝐅𝐢𝐧𝐭𝐞𝐜𝐡 𝐚́ 𝐍𝐨𝐫𝐝𝐢𝐜 𝐅𝐢𝐧𝐭𝐞𝐜𝐡 𝐖𝐞𝐞𝐤 𝟐𝟎𝟐𝟓 🇩🇰Reykjavík Fintech tók þátt í Nordic Fintech Week ráðstefnunni í Kaup...
06/10/2025

🇮🇸 𝐑𝐞𝐲𝐤𝐣𝐚𝐯𝐢́𝐤 𝐅𝐢𝐧𝐭𝐞𝐜𝐡 𝐚́ 𝐍𝐨𝐫𝐝𝐢𝐜 𝐅𝐢𝐧𝐭𝐞𝐜𝐡 𝐖𝐞𝐞𝐤 𝟐𝟎𝟐𝟓 🇩🇰

Reykjavík Fintech tók þátt í Nordic Fintech Week ráðstefnunni í Kaupmannahöfn ásamt fríðu föruneyti íslenskra fyrirtækja, fjárfesta og frumkvöðla. Ráðstefnan heppnaðist afar vel, enda hefur Nordic Fintech Week fest sig í sessi sem einstaklega frjór vettvangur hugmynda, tengslamyndunar og nýrra tækifæra.

Íslandsstofa hafði veg og vanda að kynningarviðburði þar sem Gísli Kristjánsson, forstjóri Monerium, hélt erindi og gestum var boðið upp á glæsilega kokkteila.

Við erum stolt af því að taka þátt í að efla tengsl Íslands við norrænt fjártæknisamfélag og hlökkum til að sjá fræin af því starfi vaxa og blómstra.

Hér má sjá nokkrar myndir frá ráðstefnunni.

Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður Reykjavík Fintech, og Tómas Ragnarz, framkvæmdastjóri Regus, voru í Bítinu í morgun...
17/09/2025

Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður Reykjavík Fintech, og Tómas Ragnarz, framkvæmdastjóri Regus, voru í Bítinu í morgun að ræða samstarf fyrirtækjanna við Heimi og Lilju.

Tómas Ragnarz, framkvæmdastjóri og eigandi Regus og Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður Reykjavík Fintech ræddu Fjártækniklasa.

Helsti fjártækniviðburður Norðurlandanna, Nordic Fintech Week, mun eiga sér stað í næstu viku í Kaupmannahöfn. Dagskráin...
15/09/2025

Helsti fjártækniviðburður Norðurlandanna, Nordic Fintech Week, mun eiga sér stað í næstu viku í Kaupmannahöfn. Dagskráin verður 24.-25. september og er allstór hópur Íslendinga búinn að skrá sig. Endilega skráið ykkur í sendinefndina og sendið okkur skilaboð ef þið viljið fá afsláttarkóða, sem gildir fyrir alla starfsmenn fyrirtækja sem eru meðlimir í Reykjavík Fintech, Fjártækniklasanum. Við þökkum Íslandsstofu fyrir samstarfið við ferðina.
Miðar: https://nfweek.com/tickets/
Skráning í sendinefnd: https://click.islandsstofa.is/explorecrmis-azxai/pages/k2cyvxuefczinweuilwqq.html?PageId=bfb2602b941ff011998a7c1e522956a9

Okkur er mikil ánægja að opna nýsköpunarsetur í samstarfi við Regus. Með samstarfinu verður Reykjavík Fintech hluti af u...
03/09/2025

Okkur er mikil ánægja að opna nýsköpunarsetur í samstarfi við Regus. Með samstarfinu verður Reykjavík Fintech hluti af um átta milljón manna samfélagi fólks um allan heim sem nýtir sér aðstöðu Regusar.

Slíkt samræmist sýn Reykjavík Fintech um að fjártækni sé æ alþjóðlegri og fari í vaxandi mæli yfir landamæri. Í klasanum eru fyrirtæki sem þegar hafa haslað sér völl á alþjóðamörkuðum og því er tilvalið að þau, ásamt nýjum sprotum í fjártækni, hafi aðgang að skrifstofum Regusar um allan heim.

Nýr framkvæmdastjóri Reykjavík FintechÁsgeir Theodór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Reykjavík Fintech. ...
28/08/2025

Nýr framkvæmdastjóri Reykjavík Fintech

Ásgeir Theodór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Reykjavík Fintech. Ásgeir er lögfræðingur og hefur á undanförnum árum starfað hjá Tryggingastofnun. Hann er með EMBA frá Háskólanum í Reykjavík, LL.M. í alþjóðlegum viðskiptarétti frá Vínarháskóla í Austurríki, og doktorsgráðu í heimspeki frá Southamptonháskóla í Englandi.

Mynd: Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður og fráfarandi framkvæmdastjóri, ásamt Ásgeiri Theodóri Jóhannessyni, nýjum framkvæmdastjóra Reykjavík Fintech.

22/08/2025

Fasteignavefur mbl.is tekur breytingum í dag, 22. ágúst, þegar hleypt verður af stokkunum nýrri og betri kaupsögu eigna á vefnum. Þar verður m.a. að finna á einum stað ítarlegri upplýsingar um þá fasteign sem verið er að skoða, m.a

Address

Köllunarklettsvegi 1
Reykjavík
104

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Reykjavik Fintech Cluster posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Reykjavik Fintech Cluster:

Share