Statera bókhald

Statera bókhald Við veitum alhliða bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki, einyrkja, einstaklinga og félagasamtök.

03/03/2026

🧊Fróðleiksmoli um framtalið – Frádráttur á móti styrkjum 🧊

Meginreglan er að allir styrkir til teljast til skattskyldra tekna og eru skattlagðir eins og launatekjur. Heimilt getur verið að telja kostnað til frádráttar.

✅ Dæmi um styrki sem má færa frádrátt á móti ✅
📌 Samgöngustyrkir
📌 Styrkir til líkamsræktar
📌 Starfstengdir námsstyrkir
📌 Ökutækjastyrkir
📌 Dagpeningar
📌 Náms-, rannsóknar- og vísindastyrkir

❌ Styrkir sem EKKI má færa frádrátt á móti ❌
📌 Tölvubúnaður er ekki frádráttarbær á móti námsstyrk
📌 Styrkir til kaupa á gleraugum og heyrnatækjum.
📌 Styrkir vegna sálfræðiþjónustu.
📌 Styrkir vegna glasafrjóvgunar og ættleiðinga.
📌 Styrkir vegna tannviðgerða og krabbameinsskoðunar
📌 Styrkir vegna dvalar á heilbrigðisstofnun og útfara.

❓🤷‍♂️ Fékkst þú styrk á árinu sem þú kannast ekki við að hafa sótt um? Getur verið að þú starfir hjá sveitarfélagi? Það getur verið t.d.:
📌 Katla félagsmannasjóður: Styrkir til náms og vísindastarfa.
📌 Önnur stéttarfélög: Styrkir, styrktarfé úr sjóðum

Ekki er hægt að færa kostnað á móti þessum styrkjum nema þú hafir sannarlega verið í námi og nýtt styrkinn í kostnað vegna þess. Sumir sjóðir draga staðgreiðslu strax af styrkjunum (borga skattinn strax) en sumir þurfa að greiða skattinn eftirá.

Framtalsfrestur er til 1️⃣3️⃣ mars!

👉 Nánari leiðbeiningar með framtali í fyrstu athugasemd

💥 ✨ Nýtt ár - nýjar tölur 💥 ✨Um áramót breyttust skattþrepamörk og fjárhæð persónuafsláttar.
07/01/2026

💥 ✨ Nýtt ár - nýjar tölur 💥 ✨
Um áramót breyttust skattþrepamörk og fjárhæð persónuafsláttar.

31. desember telst ekki lengur viðskiptadagur og ef greiðslur eiga að lenda inn á árinu 2025 þá þarf að greiða þær í síð...
28/11/2025

31. desember telst ekki lengur viðskiptadagur og ef greiðslur eiga að lenda inn á árinu 2025 þá þarf að greiða þær í síðasta lagi 30. desember.

Breytingar á reglum um millibankagreiðslukerfi bankans, sem nú hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.

Yfirskattanefnd búin að úrskurða um peningagjafir í formi bankakorta frá fyrirtækjum til starfsmanna. Þau eru skattskyld...
30/04/2025

Yfirskattanefnd búin að úrskurða um peningagjafir í formi bankakorta frá fyrirtækjum til starfsmanna. Þau eru skattskyld.
Hérna er hlekkur á fréttina: https://shorturl.at/f5Jqw
Hérna er hlekur á úrskurðinn: https://yskn.is/urskurdir/ #7769

Yfirskattanefnd hefur staðfest að allar gjafir fyrirtækja til starfsmanna í formi inneignarkorta hjá viðskiptabönkum séu skattskyldar. Fyrirtækjum ber þannig að halda eftir staðgreiðslu af gjöfum starfsmanna og greiða tryggingargjald vegna þeirra. Fyrirtæki ber að greiða á þrið...

Góðar upplýsingar til að hafa í huga við gerð framtals
06/03/2025

Góðar upplýsingar til að hafa í huga við gerð framtals

🧊 Fróðleiksmoli um framtalið 🧊

Þótt allar upplýsingar sem telja þarf fram sé forskráðar hjá flestum er vert að vekja athygli á að stundum þarf að bæta við upplýsingum.

📌 Verktakagreiðslur gætu verið forskráðar en það er ekki algilt. Gera má grein fyrir þeim og kostnaði á fylgiskjali með framtalinu.
- RSK 4.10 fyrir verktakagreiðslur allt að 2 milljónum
- RSK 4.11 fyrir verktakagreiðslur yfir tveim milljónum.

📌Frádráttur á móti styrk eða starfstengdum greiðslum:
Sé heimilt að færa frádrátt á móti styrk eða starfstengdum greiðslum á árinu, þarf að færa frádráttinn í kafla 2.6 á framtali. Hann fer í reit 149 eða 157 eftir hvers eðlis hann er.

🏠 Kaup og sala fasteigna eru forskráð á fylgiskjal RSK 3.02. Framteljandi þarf sjálfur að tilgreina hvers konar eign var keypt og skrá eignarhaldstíma ef eign var seld.

🌐 Erlendar tekjur, s.s. laun og lífeyrir, þarf að telja fram í kafla 2.8 á tekjusíðu framtals. Erlendar bankainnstæður þarf að skrá í kafla 3.2 og erlendar fasteignir í kafla 4.2.

🏠 Leigutekjur af íbúðarhúsnæði þarf að færa inn á fylgiskjal RSK 3.25. Þaðan flytjast þær á framtal, í reit 510 á síðunni Fjármagnstekjur. Aðrar leigutekjur, svo sem tekjur af leigu til ferðamanna sem ekki flokkast sem atvinnurekstur, þarf að skrá í reit 511 í sama kafla. Sé um rekstur að ræða þarf að setja leigutekjur á rekstrarskýrslu.

📌Lækkun á tekjuskattstofni. Eigi framteljandi rétt á lækkun á tekjuskattsstofni, svo sem vegna veikinda, slysa eða eignatjóns, er það gert með því að fylla út fylgiskjalið RSK 3.05, Umsókn um lækkun. Gögn um kostnað verða að fylgja með
Þau sem eiga ungmenni á aldrinum 16-21 árs geta átt rétt á ívilnun vegna framfærslu þeirra og sækja um lækkun á forsíðu.

📌 Staða hlutabréfa birtist eins og hún var á síðasta framtali. Allar breytingar, kaup og sala, arðgreiðslur og fleira þarf framteljandi sjálfur að færa inn á hlutabréfablaðið RSK 3.19, fylgiskjal með framtali. Gögn um kostnað verða að fylgja með.
Hafi verðbréf verið seld/innleyst á árinu er salan í mörgum tilvikum forskráð á fylgiskjali RSK 3.15, annars þarf framteljandi að skrá þær upplýsingar.

💡 Nákvæmar framtalsleiðbeiningar má finna framtalsleiðbeiningar: https://www.skatturinn.is/einstaklingar/framtal-og-alagning/framtalsleidbeiningar/2025

Skatturinn notar nú eingöngu rafrænt pósthólf á island.is - bæði fyrir lögaðila og einstaklinga. Um að gera að fara inn ...
01/02/2025

Skatturinn notar nú eingöngu rafrænt pósthólf á island.is - bæði fyrir lögaðila og einstaklinga.

Um að gera að fara inn á island.is og skoða stillingarnar, svo þið fáið tilkynningar í tölvupóstinn ykkar.

📬 Þú vilt ekki missa af bréfunum frá okkur!

📅 Frá og með 1. janúar 2025 birtast bréf frá Skattinum í Stafræna pósthólfinu á Island.is
👥 Þetta á við um bæði einstaklinga og lögaðila.

✅Skoðaðu stillingarnar þínar!
👉 Farðu í hnipp-stillingarnar (notifications) á Mínum síðum á Island.is svo bréfin frá okkur fari ekki framhjá þér.

🔗 Lesa nánar: https://www.skatturinn.is/um-rsk/frettir-og-tilkynningar/thu-vilt-ekki-missa-af-brefunum-fra-okkur

07/01/2025
30/11/2024

Þá eru tveir bankar, Arion banki og Landsbankinn, farnir að bjóða upp á að hengja kvittanir við kreditkortafærslurnar í netbankanum. Frábær þróun fyrir bókarann 😊
Vonandi elta hinir bankarnir fljótlega.

Skatturinn hefur birt álagningu lögaðila.
24/10/2024

Skatturinn hefur birt álagningu lögaðila.

Address

Suðurlandsbraut 30
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Statera bókhald posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category