TM TM - einfaldar tryggingar og hröð afgreiðsla tjóna.

09/04/2026

Það verður líf og fjör þegar TM mót Stjörnunnar hefst um helgina.

Sjáumst þar!

Lífið er óvænt og þessi Háskaegg minna okkur vel á það. Það er alltaf gott að hafa varann á. 💛Við óskum ykkur gleðilegra...
01/04/2026

Lífið er óvænt og þessi Háskaegg minna okkur vel á það. Það er alltaf gott að hafa varann á. 💛

Við óskum ykkur gleðilegra páska og vonum að þið njótið hátíðarinnar, hvort sem það er í rólegheitum eða góðu fjöri 🐣

Athugið að útibú okkar verða lokuð á skírdag, föstudaginn langa og annan í páskum.

Ef eitthvað kemur fyrir
Við hjá TM leggjum okkur fram um að grípa viðskiptavini okkar þegar eitthvað kemur fyrir. Ef þú þarft aðstoð skaltu ekki hika við að hafa samband. Neyðarsími vegna tjóna er opinn allan sólarhringinn í síma 800-6700. Þú getur einnig tilkynnt tjón á vefnum okkar eða í appinu hvenær sem er.

Háskaeggin eru gjöf sem TM fékk, en ekki til dreifingar.

Vilt þú vinna hjá TM? Það er okkur hjá TM kappsmál að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu.Við auglýsum nú laust sta...
26/03/2026

Vilt þú vinna hjá TM?

Það er okkur hjá TM kappsmál að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu.

Við auglýsum nú laust starf tjónafulltrúa í eignatjónum og leitum að jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfileika.

Helstu verkefni og ábyrgð eru almenn afgreiðsla vegna eignatjóna, tjónaskoðanir og tjónamat og síðan samskipti og þjónusta við viðskiptavini og samstarfsaðila.

Nánar má sjá um starfið og sækja um hér: https://jobs.50skills.com/tm/is/41801/

Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2026.

Vegna veðurviðvarana á morgun🌨️ Útibú á höfuðborgarsvæðinu verður lokaðVið viljum vekja athygli á veðurviðvörunum vegna ...
25/03/2026

Vegna veðurviðvarana á morgun🌨️ Útibú á höfuðborgarsvæðinu verður lokað

Við viljum vekja athygli á veðurviðvörunum vegna djúprar lægðar sem gengur yfir á morgun og hvetjum við þig til að sýna sérstaka aðgát og hlúa að fasteignum.

Búast má við mjög hvössum vindi og talsverðri snjókomu og getur myndast bylur með mjög takmörkuðu skyggni, einkum á milli kl. 7 og 11 í fyrramálið þegar umferð er mest.

Góð ráð
• Hreinsaðu frá niðurföllum og rennum
• Mokaðu snjó af svölum og við innganga
• Tryggðu lausamuni utandyra
• Forðastu óþarfa ferðir á meðan veðrið er sem verst

Ef eitthvað kemur fyrir
Við hjá TM leggjum okkur fram um að grípa viðskiptavini okkar þegar eitthvað kemur fyrir. Ef þú þarft aðstoð skaltu ekki hika við að hafa samband. Neyðarsími vegna tjóna er opinn allan sólarhringinn í síma 800-6700. Þú getur einnig tilkynnt tjón á vefnum okkar eða í appinu hvenær sem er.

Árið 2025 gáfum við í TM Borgarholtsskóla tjónaðan bíl til að sérnámsbrautin gæti notað hann í kennslu. Það gekk svo vel...
24/03/2026

Árið 2025 gáfum við í TM Borgarholtsskóla tjónaðan bíl til að sérnámsbrautin gæti notað hann í kennslu. Það gekk svo vel að við endurtókum leikinn í ár.

Nemendur fá að vinna í bílnum frá grunni, fara undir hann, skoða púströr og ljósabúnað og gera við. Lærdómurinn felst ekki bara í verkinu heldur líka í mistökunum, skrúfur eyðilagðar, festingar brotnar og er það allt hluti af ferlinu.

Við hjá TM erum stolt af því að geta lagt af mörkum og hlökkum til að sjá lokaniðurstöðuna.

🥳 Okkur vantar fólk í hópinn 🥳Nú auglýsum við starf við að þjónusta persónutjón hjá TM. Um er að ræða tímabundið starf t...
19/03/2026

🥳 Okkur vantar fólk í hópinn 🥳

Nú auglýsum við starf við að þjónusta persónutjón hjá TM. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða.

Helstu verkefni og ábyrgð eru afgreiðsla vegna persónutjóna, móttaka og skráning tjónstilkynninga ásamt samskiptum og þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila.

Starfið er á skrifstofu TM á Kalkofnsvegi í 101 Reykjavík.

Nánar má lesa um starfið og sækja um hér: https://jobs.50skills.com/tm/is/41764/

Landsbankinn býður nú upp á tryggingar TM fyrir einstaklinga og fjölskyldur 💙💚 Við hjá TM erum stolt af því að vera trau...
12/03/2026

Landsbankinn býður nú upp á tryggingar TM fyrir einstaklinga og fjölskyldur 💙💚

Við hjá TM erum stolt af því að vera traustur bakhjarl nýrrar tryggingastarfsemi Landsbankans. Saman munum við leggja kapp á að gera viðskiptavinum mögulegt að vaxa og dafna og grípum þegar áföll verða.

Þú getur fengið Aukakrónur af tryggingunum þínumTM er hluti af Landsbankanum og nú býðst viðskiptavinum að safna Aukakró...
13/01/2026

Þú getur fengið Aukakrónur af tryggingunum þínum

TM er hluti af Landsbankanum og nú býðst viðskiptavinum að safna Aukakrónum af tryggingakaupum hjá TM og jafnframt að greiða fyrir tryggingar sínar með Aukakrónum.

Þú færð Aukakrónur af tryggingunum þínum með því að greiða fyrir þær með greiðslukorti frá Landsbankanum sem safnar Aukakrónum.

Ein Aukakróna jafngildir einni íslenskri krónu sem þú getur notað til að greiða fyrir vörur og þjónustu hjá samstarfsaðilum Aukakróna, þar á meðal fyrir tryggingarnar þínar.

Þeir viðskiptavinir sem vilja safna Aukakrónum af sínum tryggingum geta auðveldlega sótt um Aukakrónukort í Landsbanka-appinu. Í kjölfarið er einfalt mál að skrá kortið sem greiðsluleið í TM-appinu.

TM og Landsbankinn eru betri saman og munu halda áfram að finna leiðir til frekara samstarfs viðskiptavinum sínum til góða.

Hér getur þú lesið meira um Aukakrónur: https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronur

Við óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir samskiptin á árinu sem er að líð...
22/12/2025

Við óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir samskiptin á árinu sem er að líða. Hér má finna afgreiðslutíma á skrifstofu og útibúum TM yfir hátíðarnar.
Við minnum þó á að neyðarnúmer okkar er að sjálfsögðu alltaf opið ef þörf er á aðstoð vegna tjóns.

Gleðilega hátíð!

Við óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar

01/12/2025

Dagur reykskynjarans er í dag.

Við mælum með að gera eins og Bjössi Brunabangsi og kanna hvort allir reykskynjarar í húsinu séu ekki örugglega í góðu standi.
Ef eitthvað er ábótavant þá mælum við með að kíkja hingað https://www.oger.is/is/vefverslun/tm-sidan

Hvatningarverðlaun TM 2025Í seinustu viku fór Sjávarútvegsráðstefnan fram í Hörpu og voru Hvatningarverðlaun TM veitt.Þr...
14/11/2025

Hvatningarverðlaun TM 2025

Í seinustu viku fór Sjávarútvegsráðstefnan fram í Hörpu og voru Hvatningarverðlaun TM veitt.
Þrjú nýsköpunarfyrirtæki fengu viðurkenningu GreenFish, Hyndla og Ration.
GreenFish hlaut síðan Hvatningarverðlaunin í ár.
Það er einstaklega gaman fyrir TM að hvetja nýsköpunarfyrirtæki í sjávarútvegi til dáða og veita viðurkenningar fyrir vel unnin störf.

TM óskar fyrirtækjunum þremur innilega til hamingju.

04/11/2025

Árlega greinast um 260 konur með brjóstakrabbamein á Íslandi.

Ein mikilvægasta forvörnin gegn brjóstakrabbameini er reglubundin mæting í skimun.

TM og Krabbameinsfélagið hafa tekið höndum saman og hvetja konur til að mæta í boðaða skimun fyrir brjóstakrabbameini þar sem TM mun endurgreiða þeim sjúkdómatryggðu viðskiptavinum sem mæta í skimun einn mánuð iðgjalda.

Við minnum þess vegna á næstu skimanir á landsbyggðinni:
- Selfoss 3. - 14. nóvember
- Reykjanesbæ 24. - 28. nóvember

Auðvitað mælum við líka með að öll kynni sér sjúkdómatryggingar, en ef sjúkdómatryggður einstaklingur greinist með tiltekinn sjúkdóm greiðir TM út skattfrjálsar bætur í formi eingreiðslu. Þannig verður líkamlegt áfall ekki að fjárhagslegu áfalli líka.

Kynntu þér sjúkdómatryggingu TM eða hringdu í 515 - 2000 til að fá frekari upplýsingar.

Sjúkdómatrygging TM: https://www.tm.is/fjolskyldan/sjukdomatrygging

Address

Reykjastræti 6
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when TM posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to TM:

Share

Hugsum í framtíð

Í takt við samfélagsbreytingar hefur þjónusta TM við viðskiptavini sína gjörbreyst á því 61 ári sem félagið hefur starfað. Þarfir og aðstæður fólks eru misjafnar, taka sífelldum breytingum og þjónustan verður að taka mið af því. Helsta áskorun okkar í dag snýr að þeim miklu breytingum sem orðið hafa vegna örra tækniframfara. Tölvu- og snjallsímaþróunin hefur þegar umbylt mörgu í okkar daglega lífi á skömmum tíma, en allt er þetta rétt að byrja.

Megineinkenni þessara tækniframfara er hraði. Á augabragði sækir fólk sér nýjustu fréttir og aðrar upplýsingar, sinnir bankaviðskiptum, kaupir farseðla og ýmsar vörur og á samskipti við vini og kunningja út um allan heim. Neytendur verða sífellt kröfuharðari og ætlast til þess að fyrirtæki mæti þeim með viðeigandi lausnum á réttum tímapunkti. Þó vátryggingastarfsemi sé í sögulegu samhengi íhaldsöm starfsemi getum við ekki leyft okkur að sitja hjá og fylgst með þessari þróun úr fjarlægð. Miklar breytingar hafa orðið undanfarin ár en ég fullyrði að á næstu 10 árum verði meiri breytingar í greininni en hafa orðið á síðustu 30 árum samanlagt.

Við hjá TM gerum okkur grein fyrir því að nýsköpun er lykillinn að því að kröfum framtíðarinnar verði mætt. Það er okkar hlutverk að mæta viðskiptavinum okkar með nýjar lausnir og þjónustuleiðir sem uppfylla kröfur þeirra. Markmið okkar er að bjóða upp á vörur og þjónustu sem fer fram úr væntingum viðskiptavina okkar og styrkja tengslin við þá með víðtækara þjónustuframboði en áður.

Nú í janúar munum við ríða á vaðið með nýju smáforriti TM fyrir snjallsíma, TM appinu. Með appinu hafa viðskiptavinir TM í hendi sér yfirlit yfir allar sínar tryggingar og iðgjöld auk upplýsinga um hvaða vernd tryggingarnar innifela. Appið gerir viðskiptavinum TM enn fremur kleift að fá algengustu tjón á heimilismunum á borð við snjallsíma, tölvur, gleraugu og sjónvörp bætt á hraða sem á sér fá fordæmi. Þetta er þó aðeins fyrsta skrefið.