Tryggingar og ráðgjöf

Tryggingar og ráðgjöf Tryggingar og ráðgjöf bjóða upp á persónulega og trausta tryggingaráðgjöf þar sem lögð er áhersla á framúrskarandi þjónustu.

TRYGGINGAR OG RÁÐGJÖF LÝKUR MÁLI VIÐ SEÐLABANKA ÍSLANDS MEÐ SÁTTTryggingar og ráðgjöf ehf. og fjármálaeftirlit Seðlabank...
30/07/2026

TRYGGINGAR OG RÁÐGJÖF LÝKUR MÁLI VIÐ SEÐLABANKA ÍSLANDS MEÐ SÁTT
Tryggingar og ráðgjöf ehf. og fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafa gert með sér sátt um að ljúka máli sem laut að upplýsingagjöf, skráningu tengsla og greiningu hagsmunaárekstra í tengslum við dreifingu vátryggingatengdra fjárfestingarafurða frá NOVIS á árunum 2019–2023.

Með sáttinni lýkur málinu endanlega. Samhliða meðferð þess hefur Tryggingar og ráðgjöf EHF. unnið markvisst að því að styrkja innra verklag sitt, stjórnarhætti, upplýsingagjöf og greiningu hagsmunaárekstra í nánu samstarfi við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands.

Tryggingar og ráðgjöf ehf. hefur frá upphafi lagt áherslu á að eiga málefnalegt samstarf við eftirlitsaðila og veita allar þær upplýsingar og gögn sem óskað hefur verið eftir.

Í viðauka við sáttina kemur fram að fjármálaeftirlitið telji að félagið hafi brugðist við úrbótakröfum eftirlitsins með fullnægjandi hætti. Félagið hefur meðal annars gert eftirfarandi:

--Endurskoðað reglur og verklag um hagsmunaárekstra
--Uppfært upplýsingagjöf til viðskiptavina
--Leiðrétt efni á vefsíðu og í upplýsingaskjölum
--Uppfært upplýsingagjöf til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands
--Upplýst þá viðskiptavini sem málið tók til

„Við fögnum því að málinu sé nú lokið. Við tókum athugasemdum fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands mjög alvarlega og fórum strax yfir verklag okkar í heild, innleiddum þær úrbætur sem kallað var eftir og styrktum enn frekar þá stjórnarhætti og upplýsingagjöf sem eru grunnurinn að traustu sambandi við viðskiptavini okkar. Við munum áfram leggja ríka áherslu á gegnsæi, fagmennsku og ábyrga ráðgjöf í þjónustu okkar við viðskiptavini,“ segir Ásgerður Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri Trygginga og ráðgjafar.

Tryggingar og ráðgjöf hefur ekki dreift afurðum NOVIS frá því starfsleyfi félagsins var afturkallað árið 2023. Á þeim tíma hefur félagið lagt áherslu á að styðja viðskiptavini sína vegna þeirra fordæmalausu aðstæðna sem sköpuðust í kjölfarið og sinnt áfram þeirri þjónustu sem hvílir á félaginu gagnvart þeim samningum sem enn eru í gildi.

👇 Sjá nánar frétt á vef Trygginga og ráðgjafar ehf. þar sem er að finna sáttina í heild. Hlekkur í fyrstu athugasemd.

Við erum stoltur styrktaraðili Golfklúbbs Reykjavíkur og ætlum að bjóða nokkrum sem skráðir eru á póstlista okkar árskor...
11/06/2026

Við erum stoltur styrktaraðili Golfklúbbs Reykjavíkur og ætlum að bjóða nokkrum sem skráðir eru á póstlista okkar árskort, vallarkort og boltakort hjá GR. Við drögum út kort vikulega frá 19. júní til 10. júlí. Ertu ekki örugglega á póstlistanum okkar?
https://mailchi.mp/tryggir/golfkort

💙 Á fréttavefnum Vísi birtist í dag viðtal þar sem rætt er stuttlega við stjórnarformann Trygginga og ráðgjafar, Arnar M...
14/04/2026

💙 Á fréttavefnum Vísi birtist í dag viðtal þar sem rætt er stuttlega við stjórnarformann Trygginga og ráðgjafar, Arnar Má Jóhannesson, og framkvæmdastjórann Ásgerði Ágústsdóttur.

🎯 Tilefni viðtalsins er að T&R býður nú almenningi upp á opna og ókeypis fræðslufundi um lífeyrismál og viðbótarsparnað, bæði séreignarsparnað og viðbótarlífeyrissparnað. Fræðslufundirnir eru hluti af markvissu kynningarátaki okkar um lífeyrismál.

⚽️ Gestafyrirlesari á fundunum er Björn Berg Gunnarsson, óháður og sjálfstæður sérfræðingur í þessum málaflokki. Björn er meðal annars fyrrverandi fræðslustjóri Íslandsbanka og til gamans má geta þess að hann er einnig ástríðufullur KR-ingur og sérstakur áhugamaður um skoska knattspyrnu.

👇 Hlekkur á viðtalið við Arnar og Ásgerði er hérna fyrir neðan í fyrstu athugasemd, en skráning á fundina fer fram á vef okkar.

💙 Hinn öflugi miðill Viðskiptablaðið birtir í dag viðtal við stjórnarformann og framkvæmdastjóra Trygginga og ráðgjafar ...
31/03/2026

💙 Hinn öflugi miðill Viðskiptablaðið birtir í dag viðtal við stjórnarformann og framkvæmdastjóra Trygginga og ráðgjafar (T&R). Umfjöllunarefnið er farsælt samstarf okkar við þýska tryggingafélagið VPV.

🎯 Samstarf T&R og VPV hefur staðið yfir í nokkur ár og verið afskaplega farsælt. VPV er stöndugt og traust félag með tæplega 200 ára sögu. Um átta þúsund Íslendingar treysta VPV fyrir viðbótarsparnaði sínum.

👇 Hlekkur á viðtalið við Arnar Má og Ásgerði á vef Viðskiptablaðsins er í fyrstu athugasemd.

Tryggingar og Ráðgjöf. Vátryggingarmiðlun sem býður upp á tryggingar frá Allianz Global Life og VPV. Kynntu þér málið strax í dag!

💙 Vorið 2026 halda Tryggingar og ráðgjöf ehf. mánaðarlega fræðslufundi um allt sem fólk þarf að vita um viðbótarlífeyris...
13/03/2026

💙 Vorið 2026 halda Tryggingar og ráðgjöf ehf. mánaðarlega fræðslufundi um allt sem fólk þarf að vita um viðbótarlífeyrissparnað. Fundirnir eru opnir öllum og ókeypis. Þeir verða á Hilton Reykjavík Nordica á þriðjudögum kl. 17-18. Dagsetningarnar eru 24. mars, 21. apríl, 19. maí og 9. júní.

👇 Skráðu þig á vef Trygginga og ráðgjafar. Hlekkur í fyrstu athugasemd.

🔥 Gestafyrirlesari á fundunum verður Björn Berg Gunnarsson, sjálfstætt starfandi fjármálaráðgjafi, sem var áður fræðslustjóri og deildarstjóri greiningar hjá Íslandsbanka. Fundarstjóri verður Ásgerður Ágústsdóttir framkvæmdastjóri T&R.

🎯 Umfjöllunarefnin eru eftirfarandi, en einnig verður boðið upp á spurningar úr sal.
– Hverjir eru helstu kostir viðbótarsparnaðar og viðbótarlífeyrissparnaðar?
– Eru mismunandi ávöxtunarleiðir?
– Hversu fljótt myndast inneign?
– Hvernig greiðum við viðbótarsparnað skattfrjálst inn á íbúðalán?
– Er hægt að nýta sparnaðinn ef fólk er að kaupa sér fasteign?
– Hvað með starfslok og viðbótarsparnað?
– Hvernig líta skattamálin út kringum úttektir, erfðir og fleira?
– Hver er munurinn á séreign og viðbótarlífeyrissparnaði?

Tryggingar og Ráðgjöf. Vátryggingarmiðlun sem býður upp á tryggingar frá Allianz Global Life og VPV. Kynntu þér málið strax í dag!

Búið er að draga út vinningshafa í EM leik okkar. Birna Mjöll Guðnadóttir nældi sér í handbolta sem áritaður er af Gísla...
03/03/2026

Búið er að draga út vinningshafa í EM leik okkar. Birna Mjöll Guðnadóttir nældi sér í handbolta sem áritaður er af Gísla Þorgeiri Kristjánssyni 🤾‍♂️ Við óskum Birnu til hamingju með boltann.

📢  Fulltrúar Tryggingar & ráðgjafar, þau Arnar Már Jóhannesson stjórnarformaður og Ásgerður Ágústsdóttir framkvæmdastjór...
09/02/2026

📢 Fulltrúar Tryggingar & ráðgjafar, þau Arnar Már Jóhannesson stjórnarformaður og Ásgerður Ágústsdóttir framkvæmdastjóri, settu saman fróðleiksgrein á dögunum að gefnu tilefni um hlutverk og starfsskilyrði vátryggingamiðlana ásamt því að greina frá sögu starfsgreinarinnar á Íslandi. Morgunblaðið hefur nú birt greinina.

👇 Tengill á greinina á vef Tryggingar og ráðgjafar er í fyrstu athugasemd.

🔥 ,,Íslenskir neytendur ættu að fagna starfsemi íslenskra vátryggingamiðlana sem eru umboðsaðilar sterkra og vandaðra erlendra tryggingafélaga ... með mörg hundruð ára rekstrarsögu, fjölbreytt vöruúrval og vandaða þjónustu [sem] dýpkar íslenska tryggingamarkaðinn. Þetta aðgengi fyrir tilstilli íslenskra vátryggingamiðlana eykur bæði samkeppni og þjónustu og er neytendum til góðs," segir meðal annars í grein Arnars og Ásgerðar í Morgunblaðinu.

📢 Talsverð umræða hefur verið um markaðskostnað og söluþóknanir vátryggingamiðlana undanfarna mánuði. Fulltrúar Trygging...
30/01/2026

📢 Talsverð umræða hefur verið um markaðskostnað og söluþóknanir vátryggingamiðlana undanfarna mánuði. Fulltrúar Tryggingar & ráðgjafar, þau Arnar Már Jóhannesson stjórnarformaður og Ásgerður Ágústsdóttir framkvæmdastjóri, settu saman fróðleiksgrein af því tilefni á dögunum sem fréttavefurinn Vísir hefur nú birt. Í greininni eru tíndar til nokkrar staðreyndir um þóknanir vátryggingamiðlana, ásamt því sem farið er stuttlega yfir rekstrarkostnað íslenskra lífeyrissjóða.

👇 Tengill á greinina er í fyrstu athugasemd.

🔥 ,,Nokkuð almenn samstaða er í þjóðfélaginu um að samningar um séreignarlífeyri og viðbótarlífeyrissparnað séu skynsamleg ráðstöfun. Hin óháða þjónusta Aurbjörg framkvæmir meðal annars samanburð á kjörum fjármálaþjónustu, til dæmis hvað snertir líftryggingar og séreignarsparnað. Vert er að hvetja almenning til að kynna sér þann samanburð," segir meðal annars í grein Arnars og Ásgerðar á Vísi.

Tryggingar og Ráðgjöf. Vátryggingarmiðlun sem býður upp á tryggingar frá Allianz Global Life og VPV. Kynntu þér málið strax í dag!

Viltu vinna handbolta úr Meistaradeild Evrópu, áritaðan af Gísla Þorgeiri Kristjánssyni? Skráðu þig á póstlista okkar fy...
28/01/2026

Viltu vinna handbolta úr Meistaradeild Evrópu, áritaðan af Gísla Þorgeiri Kristjánssyni? Skráðu þig á póstlista okkar fyrir 5. febrúar til að taka þátt.

Address

Sóltún 26
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tryggingar og ráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Tryggingar og ráðgjöf:

Shortcuts

Share