04/12/2024
Björn Berg, fjármálaráðgjafi, var í viðtali á Rás 2 í morgun, þar sem fjallað var um þau atriði sem hafa þarf í huga við val á lífeyrissjóði.
Hjá Lífsverki geta sjóðfélagar valið um að allt iðgjaldið fari í samtryggingarsjóð eða að hluti iðgjaldsins fari í að byggja upp séreignarsjóð hvers og eins. Flestir sjóðfélagar Lífsverks hafa valið síðarnefndu leiðina en þá fer 10% í samtryggingu en 5,5% í séreign af hefðbundnu 15,5% iðgjaldi af launum. Séreignin er laus til útborgunar við 60 ára aldur.
Lífsverk býður einnig góðar tryggingar, makalífeyrir er greiddur í 5 ár eftir andlát sjóðfélaga en lágmark samkvæmt lögum er 2 ár. Þá er barnalífeyrir greiddur þar til börn verða 19 ára en ekki 18 ára eins og lágmark laga kveður á um.
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi talaði um lífeyrissjóðsmál í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Hann fjallar um fjármál í Morgunútvarpinu hálfsmánaðarlega.