02/03/2026
Er oft mikið um plön en minna gert úr þeim í vinahópnum? 🤓
Við þekkjum þetta flest. Öll sammála um að gera eitthvað skemmtilegt — en svo líða mánuðir. Einhver er blankur, einhver gleymir að leggja til hliðar og önnur vill ekki þurfa að leggja út fyrir öllu og rukka hin.
Hvernig hljómar að spara saman í vinabauk? Það skapar tilefni til að hittast oftar og ákveða hvað á að gera fyrir peninginn sem safnast.
Látið traustasta aðilann í hópnum stofna sparibauk (þið vitið hver það er 😉), veljið upphæð sem enginn fær hnút í magann af og stillið reglulegar millifærslur í indó appinu inn á baukinn — og voilà ✨ peningurinn safnast smátt og smátt.
Og það besta? Það er miklu auðveldara að segja „já“ þegar þið hafið safnað fyrir því. Hvort sem það er utanlandsferð eða bara út að borða, komast öll með. Enginn fjármögnunarkvíði, ekkert stress — bara gleði og góðar minningar 💛