08/09/2023
➡️ Beðið eftir svörum frá hinu opinbera ⬅️
Undanfarna mánuði höfum við átt í góðum og skilvirkum samskiptum við hið opinbera. Samtölin hafa spannað þvert á stofnanir, yfir til seðlabankans, við fjármálaráðuneytið, yfir á alþingi og allt þar á milli.
Sama hvar við drepum niður fæti, þá upplifum við að allsstaðar sé vilji til þess að finna verkefninu brautargengi. Enda glórulaust að almenningur geti ekki varið sparifé sitt fyrir framtíðar fasteignahækkunum með því að „umbreyta" krónum yfir í fermetra 🏠
Við höfum nú á annað þúsund manns sem hafa lýst yfir áhuga á að fjárfesta í Hluteign ehf, fermetrum og/eða hafa sótt um sem leigjendur á þeim fasteignum sem við munum, saman, kaupa!
Því mikilvægt er að fólk átti sig á því að með þessu fyrirkomulagi er hægt að bjóða leigjendum hagkvæmara og öruggara húsaskjól en áður þekkist - á sama tíma og hluteigendur njóta góðs af hækkandi fasteignaverði 🚀
Allt tekur þetta tíma. Þangað til höfum við verið beðin um að halda lágum prófíl og fylgjum við þeim ráðleggingum af virðingu og tiltrú um að fljótlega verði okkur heimilt að hefjast handa.
Hefjast handa við að bjóða landsmönnum spánýjan fjárfestingarkost og aðstoða leigjendur að koma þaki yfir höfuðið á sér. Fermeter fyrir fermeter 🏘