Sparisjóður Þingeyinga

Sparisjóður Þingeyinga Sparisjóðurinn er sjálfseignarstofnun með ríka samfélagslega ábyrgð.

31/03/2026

Sparisjóður Þingeyinga leitar eftir áhugasömu fólki í stjórn

Tilnefningarnefnd Sparisjóðs Þingeyinga leitar eftir einstaklingum sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til setu í stjórn sparisjóðsins á aðalfundi sem haldinn verður í apríl 2026.
Tilnefningarnefnd auglýsir hér með eftir mögulegum stjórnarmönnum en mun einnig leita fyrir sér að eigin frumkvæði. Frambjóðendur til stjórnarkjörs skulu hafa yfir að ráða reynslu og þekkingu og/eða hafa lokið námi sem nýtist í stjórnarstarfinu. Stjórnarmenn í sparisjóðnum líkt og öðrum fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum mega búast við því að vera kallaðir í hæfismat hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Áhugasamir skulu gefa sig fram við tilnefningarnefndina með tölvupósti fyrir 10. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Þórunn Sigtryggsdóttir.

Ari Teitsson [email protected]
Þórunn Sigtryggsdóttir [email protected], gsm 894-3700

Framtíðarreikningur er góður kostur fyrir mömmur, pabba, afa, ömmur og alla þá sem vilja leggja góðan grunn að framtíð b...
30/03/2026

Framtíðarreikningur er góður kostur fyrir mömmur, pabba, afa, ömmur og alla þá sem vilja leggja góðan grunn að framtíð barnsins. Kannski verður sjóðurinn lykillinn að fyrstu íbúðinni,bílnum, draumaferðinni eða skólagjöldunum.

Reikningurinn ber hæstu vexti verðtryggðra innlánsreikninga Sparisjóðsins hverju sinni og er því tilvalinn kostur fyrir sparnað til framtíðar.

Framtíðarreikningur er góður kostur fyrir mömmur, pabba, afa, ömmur og alla þá sem vilja leggja góðan grunn að framtíð barnsins. Kannski verður sjóðurinn lykillinn að fyrstu íbúðinni,bílnum, draumaferðinni eða skólagjöldunum.

12/03/2026

Sparisjóður Þingeyinga lokar afgreiðslum sínum kl 14.00 föstudaginn 13. mars vegna starfmannaferðar. Símsvörun verður til kl 15.30

Við erum stolt af því að hafa Gunnhildi í okkar teymi. Markþing heiðraði hana fyrir störf í þágu verslunar í heimabyggð....
06/03/2026

Við erum stolt af því að hafa Gunnhildi í okkar teymi. Markþing heiðraði hana fyrir störf í þágu verslunar í heimabyggð.

Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem sýnt hefur af sér framúrskarandi baráttu í þágu verslunar eða ferðaþjónustu í heimabyggð, án þess að starfa beinlínis í greininni sjálfri.

Til hamingju Gunnhildur 💚

Gunnhildur Gunnsteinsdóttir og Heiðar Hrafn Halldórsson voru heiðruð á aðalfundi Markþings sem fram fór á Húsavík í gærkvöldi. Í fyrsta sinn í sögu samtakanna var útnefndur sérstakur heiðursmeðlimur…

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og traust samband við okkar viðskiptavini.Auk þess að bjóða upp á öflugt app ...
03/02/2026

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og traust samband við okkar viðskiptavini.

Auk þess að bjóða upp á öflugt app og nútímalegar stafrænar lausnir sem gera bankaviðskipti einföld og þægileg.

Sparisjóðurinn býður þér auðvelda og þægilega leið til að spara skipulega og aðstoðar þig við að setja þér markmið í sparnaði. Með því að nýta þér Skipulagðan sparnað stuðlar þú að góðu skipulagi á fjármálum þínum og getur aukið sparifé þitt án teljandi f

Sparisjóðirnir og Símenntun Háskólans á Akureyri hafa tekið höndum saman um samfélagsverkefni sem miðar að því að fræða ...
26/01/2026

Sparisjóðirnir og Símenntun Háskólans á Akureyri hafa tekið höndum saman um samfélagsverkefni sem miðar að því að fræða eldri borgara um upplýsingaöryggi. Markmiðið er að fræða um helstu hættur sem fylgja netinu og notkun snjalltækja á einfaldan og aðgengilegan hátt.

Sparisjóðirnir og Símenntun Háskólans á Akureyri hafa tekið höndum saman um samfélagsverkefni sem miðar að því að fræða eldri borgara um upplýsingaöryggi.

Stofnaðu reglulegan sparnað á einfaldan og öruggan hátt í í appi eða Heimabanka.Þú velur nafn á sparnaðinn, ákveður upph...
15/01/2026

Stofnaðu reglulegan sparnað á einfaldan og öruggan hátt í í appi eða Heimabanka.

Þú velur nafn á sparnaðinn, ákveður upphæð og hversu oft þú leggur fyrir, til dæmis mánaðarlega. Restin gerist sjálfkrafa.

Einfaldara verður það ekki. Byrjaðu í dag að safna fyrir draumunum þínum, hvort sem það er utanlandsferð, nýr bíll, framkvæmdir eða eitthvað allt annað sem skiptir þig máli.

Þú velur nafn á sparnaðinn, ákveður upphæð og hversu oft þú leggur fyrir, til dæmis mánaðarlega. Restin gerist sjálfkrafa.

Launagreiðenda- og sjóðfélagavefir fyrir Lífsval eru nú aðgengilegir í Heimabankanum.Búið er að loka fyrir gömlu launagr...
12/01/2026

Launagreiðenda- og sjóðfélagavefir fyrir Lífsval eru nú aðgengilegir í Heimabankanum.

Búið er að loka fyrir gömlu launagreiðenda- og sjóðsfélagavefina í Jóakim.

Launagreiðenda- og sjóðfélagavefir fyrir Lífsval eru nú aðgengilegir í Heimabankanum.

Við höfum bætt við nokkrum nytsamlegum nýjungum í appið okkar og Heimabankann.Má þar nefna eftirfarandi:- Hægt að stofna...
09/01/2026

Við höfum bætt við nokkrum nytsamlegum nýjungum í appið okkar og Heimabankann.

Má þar nefna eftirfarandi:
- Hægt að stofna reglulegan sparnað
- Hægt að stofna debetreikning
- Meðgreiðendur láns geta nú séð lánið í appi og Heimabanka
- Búið að bæta framsetningu á ógreiddum reikningum
- Lengra skýringarsvæði fyrir millifærslur í appi
- Launagreiðenda- og sjóðfélagavefir fyrir Lífsval eru nú aðgengilegir í Heimabankanum
- Einfaldara kröfusniðmát í Heimabanka

Við höfum bætt við nokkrum nytsamlegum nýjungum í appið okkar og Heimabankann.

Við óskum þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.Við þökkum samstarfið og viðskiptin á árinu sem er að ...
19/12/2025

Við óskum þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Við þökkum samstarfið og viðskiptin á árinu sem er að líða.

Afgreiðslur Sparisjóðsins verða lokaðar á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag.Lokunin á einnig vi...
19/12/2025

Afgreiðslur Sparisjóðsins verða lokaðar á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag.

Lokunin á einnig við símaþjónustu Sparisjóðsins.

Aðra daga er hefðbundinn opnunartími.

Við bendum á að Sparisjóðs-appið og Heimabankinn eru alltaf aðgengileg óháð tíma og staðsetningu.

Afgreiðslur Sparisjóðsins verða lokaðar á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, nýársdag og gamlársdag.

Address

Kjarna
Laugar
650

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sparisjóður Þingeyinga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sparisjóður Þingeyinga:

Share