09/07/2026
Stór stund hjá mér sem fasteignasala nú þegar við hjá LANDMARK og HEIMILI höfum tilkynnt samruna tveggja öflugra og farsælla fyrirtækja sem samtals telja 40 starfsár.
Með sameigningunni verður til ein stærsta og öflugasta fasteignasala landsins með 22 einstaklingum innanborðs.
Ég er afar spennt fyrir komandi breytingum og nýju samstarfi og er sannfærð um að þetta skref muni verða okkur og viðskiptavinum okkar til heilla. Við teljum að með samrunanum séum við að bæta þjónustustigið enn frekar og stíga inn í nýja tíma sterkari en nokkru sinni fyrr.
Ég mun nú sem endranær leggja mig fram við að veita mínum viðskiptavinum faglega og persónulega þjónustu. Ég þakka traustið sem mér hefur verið sýnt við miðlun fasteigna síðustu 14 ár og ég hlakka innilega til framhaldsins.
Hér er fréttatilkynningin:
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust.
Eigendur fasteignasalanna Heimili ehf. og Landmark fasteignamiðlun ehf. hafa ákveðið að sameina rekstur félaganna og stofna nýja fasteignasölu sem mun hefja starfsemi undir nýju nafni í haust.
Með sameiningunni verður til ein öflugasta fasteignasala landsins sem sameinar áratuga reynslu, öflugan mannauð og skýra framtíðarsýn um að vera í fremstu röð fasteignamiðlunar á Íslandi. Hin nýja fasteignasala verður skipuð rúmlega 20 starfsmönnum, allt löggiltir fasteignasalar með víðtæka reynslu af íslenskum fasteignamarkaði.
Heimili fasteignasala var stofnuð árið 2002 og er því 24 ára, Landmark fasteignamiðlun var stofnuð árið 2010 og er því 16 ára. Bæði fyrirtækin hafa á sínum starfsvettvangi byggt upp sterkt orðspor fyrir fagmennsku og árangur á íslenskum fasteignamarkaði.
Eigendur hins nýja félags eru níu löggiltir fasteignasalar sem hafa um langt árabil starfað við fasteignamiðlun. Með sameiginlegri sýn leggja þeir áherslu á fagmennsku, persónulega þjónustu og öfluga ráðgjöf fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki á öllum stigum fasteignaviðskipta.
„Með þessari sameiningu verður til öflugur vettvangur fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini. Við sameinum reynslu, sérþekkingu og sterkan mannauð tveggja farsælla fyrirtækja og getum þannig boðið enn öflugri þjónustu á öllum sviðum fasteignaviðskipta. Markmið okkar er að byggja upp leiðandi fasteignasölu sem sameinar fagmennsku, traust og nýsköpun,“ segir Finnbogi Hilmarsson, framkvæmdastjóri hinnar nýju fasteignasölu.
Að sögn Moniku Hjálmtýsdóttur, stjórnarformanns hinnar nýju fasteignasölu, er sameiningin afrakstur sameiginlegrar sýnar eigendanna um framtíð fyrirtækisins.
„Við höfum um nokkurt skeið séð tækifæri til að sameina styrkleika Heimilis og Landmark undir einu þaki. Með því skapast öflugra fyrirtæki sem býr yfir breiðari þekkingu, sterkari innviðum og enn meiri getu til að mæta síbreytilegum þörfum viðskiptavina. Við teljum að þetta sé farsælt skref fyrir fyrirtækið, starfsfólkið okkar og viðskiptavini til framtíðar.“
Undirbúningur að starfsemi félagsins stendur nú yfir og verður nýtt nafn og vörumerki kynnt síðar í sumar. Stefnt er að opnun í haust. Á meðan undirbúningi stendur munu Heimili og Landmark halda áfram starfsemi sinni með óbreyttum hætti og viðskiptavinir beggja fyrirtækja munu áfram njóta sömu þjónustu og áður.
Sameiningin endurspeglar þá þróun sem orðið hefur á fasteignamarkaði á síðustu árum, þar sem auknar kröfur um sérfræðiþekkingu, stafrænar lausnir og öfluga ráðgjöf kalla á sterkari og fjölbreyttari rekstrareiningar. Eigendur telja hið nýja félag vel í stakk búið til að mæta þeirri þróun og styrkja enn frekar stöðu sína á íslenskum fasteignamarkaði.